okay, ég er 14 ára og heng eiginlega bara með eldri krökkum utan skólans í frítíma mínum, sem eru ekki í sama skóla og ég, og eru flest í Menntaskóla.
Foreldrar mínir þekkja ekki helminginn.
svo allt í einu bara núna áðan þá var ég að fara út á rúntinn með vinum mínum (ég drekk ekki né reyki, þannig mér á alveg að vera treystandi), þá spyr pabbi minn “af hverju ertu ekki að leika við krakkana í hverfinu ? ég þekki ekkert þetta fólk sem þú ert að leika við núna, þau eru öll eldri en þú og ég ætla bara að stoppa þetta af hér og nú.” og svo fer hann að spurja um krakkana í skólanum mínum og hvar eru gömlu bestu vinir mínir.
ÞÚ VEIST, EF ÞAU VÆRU SKEMMTILEG, ÞÁ VÆRI ÉG AÐ HANGA MEÐ ÞEIM EFTIR SKÓLA.
þannig núna, má ég ekki hitta bestu vini mína, eða hanga með þeim.
núna vill hann og mamma líka, að ég sé bara með krökkunum í hverfinu.

HVAÐ Á ÉG AÐ FOKKING GERA ?!