Absolutely scrumptrelessant Páskadagur……

Ding dong!
Dyrabjöllunni er ekki hringt, Elín fer ekki til dyra.

Elín: Nei hæ, hvað ert þú að gera hér?

Svarað: Ég var nú bara í bænum og ákvað að hringja dyrabjöllunni þinni ekki og fá mér kleinu í staðinn.

Elín: Ekki viltu taka af þér frakkann og koma inn fyrir?

Svarað: Jú ætli það ekki, ætla bara að drekka kókómjólk til að losna við hikstann sem ég fékk fyrir að borða kleinuna of hratt.

Elín: Ég skil bara hurðina eftir opna, og ekki láta þér bregða þegar þú kemur upp, ég er nefnilega að veggfóðra parketið mitt.

Svarað: Úff, ég skal reyna.


Uppi í eldhúsi….


Elín: Ekki má bjóða þér pönnuköku með Sigmars marmelaði, Sigurjón?

Sigurjón: Jú, ætli það ekki.

Elín: Jájá.

Sigurjón: Hvar er baðherbergið?

Elín: Nú?

Sigurjón: Ég….þarf að kúka…Og borða pönnukökuna í friði með gamalt og gott Andrésblað…

Elín: Nú jæja, ekki vera lengi…Og passaðu að þér verði ekki kalt.



(Ég tapa skriftarmójó'inum mínum og horfi út í loftið)



Þegar Sigurjón snýr aftur af klósettinu……


Elín: Gekk vel?

Sigurjón: Ég misskildi þetta eitthvað, ég kúkaði á vöffluna, braut klósettsetuna og borðaði tannburstan þinn.

Elín: Ojæja.

Sigurjón: Veistu hver Lárus er?

Elín: Nei.

Sigurjón: Ekki ég heldur.

Elín: Förum út á trampolín.

Sigurjón: Ókei.


Narrator: Allt gekk vel hjá þeim Elínu og Sigurjóni eftir það, ekki ekta fálmarar……


…..


…..


The cake is a lie…..




Ég vil nota tækifærið og segja….Ætli það sé hægt að stofna Hatiklúbba Hatiklúbbinn?
Eða bara WA, Waffloholics Anonymous…


Hérna kemur síðan listi yfir hluti sem ég hef uppgötvað erfiðu leiðina:


Kisur eru ekki góður klósettpappír.

Ekki borða bökunarduft og kók saman…..sama hversu gott það er á bragðið

Ef haframjölið er farið að skríða, ekki borða það.

Að borða eintóm dagblöð í heila viku til að athuga hvort maður kúki pappamassa er ekki góð hugmynd.

Ekki borða hneturnar í niðurganginum þínum.

Ef það er ekki til klósettpappír, ekki skeina þér með handklæði.

Svali og selspik fara ekki vel saman.

Að öskra “HÓRKERLING!” á eitthvað fólk niðri á Lækjartorgi er ekki góð hugmynd.

Ekki nota munnmæla í rassinn.

Ekki nota rassmæla í munninn.

Að búa til rónahníf úr flösku og reyna að skera brauð með honum er ekki góð hugmynd.

Dabbi Grensás vill ekki gefa út eiginhandaráritanir.

Ekki kasta víti niður ruslarennu.

Kisur eru ekki til að sitja á.

Ekki fara í Quality Street kappát klukkutíma áður en þú ferð í tuttugu tíma flug.

Ekki elda nakinn.




Hellscrem, BKI.
Kakóþeytir