mér leiðist .
svo ég sit alein og hlusta á abba ( ég verð ekki mikið sorglegri nei)
abba er samt slatta góð hljómsveit eða já miðiað við það að vera diskóhljómsveit.

en elsku litlu rottunar mínar mig vantar það að þið séuð góð við mig núna ég er að drepast úr hálsbólgu og kvefi og af því ég er að drepast úr hálsbóglu og kvefi þá er ég komin með léttan hausverk og vont bragð í munninn

mig langar pínu að losna við þetta

en svo hef ég verið að pæla …

strákar . ég veit að það er ljótt að alhæfa og þetta á því bara við um lítinn hóp ykkar en hinir geta kannski gefið nokkur svör
það er dáldið mikið um það að þið séuð að nota munntóbak og þið virðist alltaf halda að þið séuð harðari eftir því sem þið getið troðið meiru undir efrivörina.

afhverju geriði það ?
þið lítið út eins og ofvaxnir naggrísir
jájá það er nokkuð krúttlegt að sjá ykkur þarna útum allt með yfirvörina svo troðna að þið getið ekki lokað munninum almennilega og það sést í risastórar framtennurnar
en naggrísir eru ekki sexy
bara sorry
og sérstaklega ekki ofvaxnir naggrísir

endilega ( ef þið eruð að nota þetta ) takið þennan óþverra úr kjaftinum á ykkur

þakka fyrir mig
rétt upp hönd sem nennti að lesa þetta allt
þið fáið smitandi knús

*syngur voulez vous með abba og valhoppar út í sólsetrið*

Bætt við 29. ágúst 2008 - 14:46
þegar ég pæli í því þá er þetta ekki mikill texti svo þið hafið enga afsökun fyrir því að lesa þetta ekki

svo þeir sem lesa þetta ekki verða rassskeltir duglega af engri annari en mér

svo þið skulið passa ykkur !!!