Hvað er málið með fólk sem gistir hjá mér að hrjóta? o.O

Agnes hrýtur núna.
Svenni hraut þegar hann gisti hérna.
Mér fannst ég heyra smá hrotur frá Ólöfu.
Og Sigrún hraut pínu.

Þetta eru 4 síðustu manneskjurnar sem gistu hjá mér, mér finnst þetta kjánalegt!
Ég sofna alltaf langt á eftir öllum öðrum, þannig ég tek eftir svona hlutum.

Ég ætla gera könnun.

Ég ætla að fá fólk til að gista hjá mér og gá hvort það hrýtur, og skrá niður hversu mikið, hversu hátt og í hvaða svefnstellingu það sefur.

Býður einhver sig fram?