Ég fann fjögur egg áðan, rétt hjá þar sem ég á heima. Þau voru brún með svörtum slettum og um 5cm löng. Þau voru frekar köld og engin mamma var hjá þeim þegar ég fann þau. Ég beið í rúman hálftíma eftir að mamman myndi koma en hún kom aldrei. Mig grunaði að þetta væru máfa-egg þar sem máfar eru þarna út um allt, en ég hef enga hugmynd hvaða tegund þetta er.
Veit það einhver?

Og líka það að kærasti vinkonu minnar á heima rétt hjá mér, og það var máfur fastur í stigaganginum hans í morgun. Hann var allur blóðugur eftir að hafa reynt að komast út gegnum gluggan. Ég var að pæla hvort það gæti hafa verið mamman?
Og væri það góð hugmynd ef ég myndi taka eggin heim til mín og hugsa rosalega vel um þau?



Bætt við 29. júlí 2008 - 17:14



Þessi kærasti vinkonu minnar hringdi á lögregluna og hún kom og drap máfinn, sem gæti hugsanlega verið mamman!