Haldið þið ekki bara að ég hafi vaknað um miðja nótt við að svartur köttur sem ég hef aldrei séð áður var búinn að lauma sér inn um gluggann hjá mér og var orðinn alveg rosalega áhugasamur á fuglunum mínum. Um leið og ég settist upp spændi hann upp gólfteppið og stökk upp í gluggakistu, datt niður úr henni og feldi hillu í herberginu mínu, stökk aftur upp í gluggakistuna og þaut út um gluggann.
Snilldin er að ég bý á annari hæð og hann hefði þurft að stökkva yfir á gluggasilluna af stigapallinum.

Hvernig eru uppáhalds sokkarnir þýnir annars á litinn?