Vitiði…..ég held ég sé andsetinn af áttræðum kalli sem heitir Sigurvin Jósef Bjartmarsson…..


…..Því hvar annarsstaðar ætti ég að læra orð eins og steinolíustekkimaskína og synningur?

…..Svo er kallinn með allskonar kröfur sem ég verð að framfylgja, hálfur líter af lýsi á dag, einn poki af Sýslumanns-harðfisk, einn pakki sviðasulta í kvöldmat og svo blóðmör til að narta í á nóttunni.
Síðan er ekkert að drekka með þessu nema meira lýsi.

Svo er hann að neyða ofan í mig hvannarrótarbrennivín um jólin og áramótin.

Svo finnst honum rosalega gaman að kvarta um leiðinleg hljóð i bílunum sem keyra fyrir utan íbúðina, og svo er hann alltaf að pirrast á “þessu öskri” sem ég er alltaf að hlusta á og hvað ég hef ekkert að gera við tölvu, þetta sé allt saman verkfæri andskotans.

Síðan er hann alltaf að tala um einhvern Bakkus…Hver er þessi helvítis Bakkus?….Veit ekki en held hann sé að tala um Karíus og Baktus….ekki viss.

Nei ég segi svona……Alltaf gaman að skrifa eitthvað kjaftæði^^



BKI
Kakóþeytir