haha fann þetta og bara varð að setja þetta inn hlustaði alltaf á þetta þegar ég var lítil:)
með gítarnótum og alles


Járnkarlinn

Ég Cþekkti eitt sinn drengstaula
sem G fölur var og fár,
með reytt og úfið hár,
svo C skyndibitablár.
Ég sá of þennan strákaula
hann G gugginn var og grár.
Hann vældi þó að aldrei kæmu C tár.

Hann vildi aldrei borða neitt
sem G kraftinn gefið gat,
hann bara sat og sat
og C gaf í fæðu frat,
en mamma hans og pabbi
pældu G allar leiðir út,
en dýrið setti' upp vandlætingar- C -stút.C7

Þá F vítamín amma' honum C kraftinn allan gaf.
Hún G dældi honum ofan í hann C þegar hann svaf.
F Stafrófinu af vítamínum C fékk hún í hann blekkt
með G smurolíukönnu og stórri C tekt.

Hann er eins og klettur það heyrist G doj-joj-joj-joj-joj.
Þegar hann dettur þá heyrist C doj-joj-joj-joj-joj.
Hann heitir Árni og segir G doj-joj-joj-joj-joj.
Hann er úr járni, því heyrist C doj-joj-joj-joj-joj.

Og C amma hans með blindu auga
G bissnesljósið sá
gull á fingri og tá
sú C gamla fór að spá.
Að markaðssetja gemlinginn
til G gróða yrði gott
og íslands besta
landkynningar- C -plot

Nú C æðir hann um heimsbyggðina
í G hasarfullum leik
umbinn amma er hvergi smeyk
hann C lemur alla í steik
Sem andlit okkar út á við
hann G talar skýrt og hátt
hann gæti leikið He-man voða C grátt.

Já F vítamín amma' honum C hormónana gaf.
Hún G dældi þeim ofan í hann þegar C hann svaf.

F Stafrófinu af bætiefnum C fékk hún í hann blekkt
með G smurolíukönnu og stórri C tekt.

Hann er eins og uxi það heyrist G doj-joj-joj-joj-joj.
Þegar hann er hugsi þá heyrist C doj-joj-joj-joj-joj.
Hann heitir Árni og segir G doj-joj-joj-joj-joj.
Hann er úr járni, því heyrist C doj-joj-joj-joj-joj.

En F vítamín amma' honum C bætiefnin gaf.
Hún G dældi þeim ofan í hann C þegar hann svaf.
F Bílhlössum af próteinfæðu C fékk hún í hann blekkt
með G fægiskóflu og risastórri C tekt.

Hann er eins og klettur það heyrist G doj-joj-joj-joj-joj.
Þegar hann dettur þá heyrist C doj-joj-joj-joj-joj.
Hann heitir Árni og segir G doj-joj-joj-joj-joj.
Hann er úr járni, því heyrist C doj-joj-joj-joj-joj