Held það sé kominn tími á að ég sendi inn eitt stikki þráð.
Finnst bara allt of lítið búið að vera af sorp fíling hérna uppá síðkastið. Er farinn að halda að ef ég geri ekki eitthvað muni ekkert gerast í þessu!

Það sem ég á við með sorp fíling er þráður sem hefur ekki mikinn tilgang annann en að starta umræðu um hvað sem fólki langar að tala um.
Svona til að koma þessu í gang ætla ég að koma með svona spurningalista eins og allir virðast hata, en nánast engin getur staðist að svara :P

1. Hvar á að vinna í sumar?
2. Hvað er í kvöldmatinn hjá þér?
3. Hvaða lag er verið að hlusta á ?
4. Hvað er uppáhalds áleggið þitt á brauð?
5. Hvað langar þig að gera núna sem þú ert ekki að gera?
6. Skulda ég þér knús?

1. Er að vinna núna í Borgarpríði. I get to put mud and stuff into bags :D
2. Gúllas held ég
3. Audioslave - Show me how to live
4. Ostur. Er sjaldan með hann eintómann, en hann passar einfaldlega með svo mörgu
5. Borða, fara í sturtu eða kúra
6. Nei. Ég get nú varla skuldað sjálfum mér knús O_o

Þessi þráður er sponsoraður af sunnagje a.k.a. Sunna!
Þetta var awesome