Já gott fólk, nú er ég búinn að skrá mig í Vísindakirkjusöfnuðinn í Danmörku, og þess vegna ætla ég að hjálpa að dreifa boðskap þeirra.
Þú getur skráð þig í söfnuðinn með því að gefa upp kortanúmer, kennitölu, reikningsnúmer og með því að leggja 600.000 krónur í sjóð kirkjunnar.
Síðan þegar þú ert orðinn meðlimur bjóðum við þér upp á sálarhreinsun til að losa þig við allar geimverusálirnar sem eru fastar í líkama þínum fyrir aðeins 60.000 kr.
Svo sem meðlimur verður þú meðal annars að sitja inni í skáp í 6 daga og borða aðeins kakkalakka og táneglur til að standast ákveðið inntökupróf og gerast æðri meðlimur.
Ef þú lendir síðan í lífshættulegu slysi ert þú skyldaður að hringja ekki á sjúkrabíl, heldur hringja í Karl Sigvald Kolbeinsson, bílstjóra á Nýju Sendibílastöðinni, og hann keyrir þig á næsta sjúkrahús sem hlynnt er boðskap Vísindakirkjunnar.
Aðeins er eitt þannig sjúkrahús á Íslandi, Sjúkrahús/Hundahótel Xenu, sem því miður er í 65 km. fjarlægð, en þetta eru bara reglur…


….nei ég er bara að grínast…..hvað segið þið annars?
Kakóþeytir