HVAÐ ER AÐ!!!!???

Í alvöru talað, ég er ekki sorpari, ég er ekki það mikill nöldrari og ég er ekki aðdáandi söngkeppna, ein einhverra hluta vegna sit ég hérna í góðra vina hópi að sötra bjór og fylgjast með keppninni.

So sorry ef að einhverjir þátttakendur lesa þetta en megnið af þessu SÝGUR ILLILEGA! Sýgur svo illilega að ég er farin að bitcha á netinu. Farið bara heim og syngið í sturtunni eins og annað falskt fólk, ég er nokkuð viss um að foreldrar ykkar hafi hljóðeinangrað baðherbergið hjá ykkur núna svo þetta ætti að vera í góðu lagi.

Þýðingin á mörgum lögunum er fáránleg, og sem mikill Nick Cave aðdáandi þá meiddi ég mig í eyrunum við að heyra lagið illa þýtt og ekki nógu vel sungið.
Damien rice þýðingin er fáránleg, og hvað er uppi með að leyfa frönskunni að vera?? Ef að það á að þýða enskuna, á ekki líka að þýða frönskuna? Fkn fáránlegt.

Í heildina séð finnst mér keppnin fokking feila….
Varð að fá að deila þessu aðeins með landanum..

Bætt við 12. apríl 2008 - 22:20
já og btw, fólkið í salnum feilar sem crowd…. kræst. Pleh… Þetta var hörmuleg keppni, en ojæja til hamingju þeir sem unnu og allt það kjaftæði.