haha alla vega í nótt þá gekk ég í svefni reyndar bara framm í eldhús en þetta er í fyrsta skipti sem ég labba einhvert og vakna, og mér brá ekkert smá en var bara að pæla hvort einhver væri með svona skemmtilega sögur af fólki sem gekk í svefni og gerði eitthvað:)



Kom einu sinni fyrir mig,ég var á ættarmóti og allir gistu inn í íþróttasal á dýnum. Ég svaf hliðin á frænda mínu en það var samt kollur eða e-h á milli okkar. Svo um miðja nótt rís hann upp og snýr sér að mér og segir réttu mér vatnsglasið og geri það. Svo tekur hann það og legst niður og allt vatnið yfir hann og hann vissi ekkert hvað gerðist en ég þóttist bara vera sofandi, en það er búið að hlæja mikið af þessu.