Myspace er virkilega óskemmtilegur hlutur. Að minnsta kosti í augnablikinu. Allt Hvítt! Ég er megapirruð.

Hvað segiði annars? Eru ekki allir í stuði? Ég er ekki í stuði. Veraldarvefurinn hatar mig.

Er myspace að drepa ykkur líka?
Hvernig lýsa myspacevillurnar ykkar sér?
Kunniði einhverja töfraleið til að laga þetta?
Hafiði einhverja hugmynd um afhverju þetta er?
Hversu oft tannburstuðuð þið ykkur í morgun?

Prófið fyrir mig að segja “tannburstuðuð” nokkrum sinnum í röð.
Allir hlutir eru haldnir heimþrá til jarðarinnar og þess vegna falla þeir þangað þegar tækifæri gefst.