Hæ.
Ég veit ekki alveg hvar ég ætti að setja þetta þannig að mér datt í hug að setja þetta hér.

Þannig standa málin að ég er hérna heima hjá kærastanum, og ég ætlaði að elda mér kjötfars og kartöflur….

Ég fer í hornskápinn og tek 2 potta… einn er ókey en i´hinum eru 3 pöddur.
2 pöddur eru sama tegund og eru pínkulitlar… minna mig á einhvernegin bjöllu/maur eitthvað, ég veit ekki, þær virka ljósbrúnar á litinn.
3 paddan er allt öðruvísi, miklu minni og er hvít á litinn og labbar miklu hraðar heldur en hinar, þessi mininr á einhverskonar lús,

Var að spá hvað þetta gæti verið? það er fullt af þessu í skápnum og ég vil komast að því hvað þetta er.

Veit einhver um síðu sem að ég get kanski fundið mynd og lýsingar af pöddum og svnoa sem koma í hús?
Þetta er ekki beint hreinlegasta hús sem til er… það er gamalt og já, ekkert voða hreint.

Takktakk. Vonast til að fá einhver svör.
Honey! Get mommy's Bazooka!