Hit me baby one more time....! Miðvikudagur

Þú veist, ég var bara ótrúlega hissa á þessari h“$#% vitleysu í gaurnum! Að halda að ég, hin dáða og dýrkaða Superdansk stelpan hafi framið svona ógeðslegan glæp!

Ég meina, hver er í alvörunni að fara að gera það sem hann sagði að ég hefði gert! Ég vildi bara benda á að ég er sko ekki eins og allar hinar stelpurnar!!! Ég er ekki eins og stelpan við hliðiná sem heldur að lífið snúist um Barbie og…..KEN!

Allt í lagi, ég viðurkenni, ég fór kannski yfir strikið en varla svo mikið yfir strikið. Ég meina, kommon, þetta var bara h”#$% vaxlitur. Það er ekki eins og ég hafi meint eitthvað með þessu. ÞETTA VAR BARA VAXLITUR.

Alla vega, nú er Alheimsalríkisogöryggisvarnarráðuneytið (AAOÖVR) komnir í málið og nággrannarnir eru byrjaðir með hinu svæsnustu og skrýtnustu sögur, en feisum það, hvað er eiginlega skrýtið í þessum heimi.

Eftir að svínin tóku við stjórn í Mars hefur bara allt farið niður á við. Ég skil ekkert í þessum heimi lengur.

Superdanskpige kveður

P.S Hún þarf að fara til AAOÖVR í yfirheyrslur…ég endurtek, þetta var bara vaxlitur!!!!
If there is one eternal truth about politics, it is that there is always a dozen good reasons for doing nothing