Já síðustu daga hef ég tekið eftir mjög lélegri þjónustu á nokkrum stöðum og búðum. Ég ætla hér í þessari grein/kork að fara yfir þetta því þetta fer verulega í taugarnar á mér.

BT Kringlunni; Um daginn var ég með innleggsnótu í BT og ákvað að fara í Kringluna því þangað var styst að fara. Þangað fór ég með félaga mínum og við strunsuðum beint í BT. Þegar þangað var komið tók langan tíma að ákveða hvað kaupa skyldir fyrir þennan 6.999 kall. Ég ákvað að versla eina Playstation 3 þráðlausa fjarstýringu. Þegar ég gekk að afgreiðsluborðinu sá ég satan í mannslíki. Ég lýsi henni ekki frekar því það gætu margir tekið því illa. Ég lét hana fá kortið mitt, þar viðurkenni ég mistök mín, og hún tók við kortinu. Þegar ég áttaði mig á að ég hafði látið hana fá kortið í staðinn fyrir nótuna þá varð ég eylítið pirraður.
Ég spurði afgreiðslumanninn/konuna um að setja peninginn aftur inná kortið og taka við innleigsnótunni. Hann/hún sagði þvert NEI, ÞAÐ ER EKKI HÆGT. Ég ákvað að taka því og fór í burtu. Þegar ég kom heim áttaði ég mig á því að það er alveg hægt að gera það og trompaðist.
Vill meina það að hann/hún vildi ekki setja peninginn inná kortið því hann/hún einfaldlega nennti því ekki! Þegar ég fór til baka var sami afgreiðslumaðurinn/konan og hann/hún vildi ekki gera mér þennan greiða þó ég væri með nótu fyrir innkaupunum og öllu heila klabbinu.


Leikbær Skeifunni; Ég veit, þetta hljómar kannski dálítið asnalega en ég var í Leikbæ um daginn að versla JÓJÓ þar sem þau eru ekki til eða ég hef ekki fundið þau annars staðar. (EF ÞIÐ VITIÐ UM STAÐ SEM SELJA JÓJÓ, ÞAR AÐ SEGJA ALMENNILEG JÓJÓ, GERIÐ ÞIÐ ÞAÐ AÐ LÁTA MIG VITA)
Þegar ég kom þangað spurði ég afgreiðslukonuna hvort hún seldi JÓJÓ hérna og hún svaraði því jákvætt. Ég varð ágætlega glaður. Hún sýndi mér fyrst eitthver druslu-jójó sem voru á stærð við hnetu. Þá spurði ég: Áttu einhver almennileg og góð JÓJÓ? Hún svaraði því játandi. Meira að segja sagði hún: Já, ég á nefninlega nokkur góð hérna. Hún sýndi mér jójó og ég keypti þau. Þegar ég opnaði þetta var þetta hið mesta drasl og meira til. Ég alveg brjálaðist nokkurn veginn því þarna rændi hún 350 kr. af mér og félaga mínum. Ég sagði: Þetta er hið mesta drasl. Þá svaraði hún: ÉG SAGÐI ALDREI AÐ ÉG ÆTTI NEIN GÓÐ JÓJÓ.
Járkall Z, það er flott, sérstaklega