Ég var að vinna í dag. Það var hræðilega leiðinlegt. Rafmagnið fór tvisvar sinnum af (ég vinn í Bónus), og af því að minn kassi var ekki með batterí þurfti ég að standa fyrir framan einhverja konu shit vandræðalegt. Og já, ég sé ekkert rosalega vel núna þannig að ef það er eitthvað að textanum…
Getið hvað! Svo fór þjófavörnin í gang! og þetta var ekkert lágt bíb, bíb, bíb… þetta var
VÍÍÍÍÍÍÍ… endalaust shit. Samt fyndið að allir héldu að þetta væri brunabjallan :')

Ég hef aldrei fengið svona rosalega í eyrun! Ætli maður eigi rétt á heyrnatólum til þess að skaða ekki heyrnina á þessu?
Ég heyrði í þessu í svona korter eftir að þetta var hætt :(

Og já, hvað er mest pirrandi hljóð sem þið hafið heyrt?