Ég brenndi mig á sykri!

Ég bræddi sykur til að festa saman piparkökuhús, en rakst í sykurbráðina og brenndi mig illilega.
Það skrítna var að ég var nýbúin að kenna litla bróður mínum að sleikja á sér puttann, setja hann á rasskinnina og segja TSS!
Og svo var ég að vinna í dag, og þessi tælenska (sem hlær mjööög undarlega) steig ofan á puttann minn!

Svo já, puttarnir mínir eru ekki glaðir :(