Hæ öllsömul og heil hitler

Ég ætla aðeins að fjalla um vinnustaðinn minn…

Vinnustaðurinn minn er stór.

Vinnustaðurinn minn er á efstu hæð í húsi.

Það er einungis eitt klósett á vinnustaðnum mínum, þeas eitt sem er nothæft. Ég get notað hitt en fyrst það er ekki búið að tengja það tel ég að yfirmenn mínir yrðu sárir ef það fyrsta sem þyrfti að gera áður en það er tengt er að hreinsa saur og þvag sem ég hef skilið eftir.

Gólfið hérna er mjög hrjúft. Ég get til dæmis ekki leikið mér í því að fara úr bolnum og rennt mér á gólfinu á mallanum mínum þó ég smyrji það með smjöri. Það finnst mér ótrúlega ótrúlega leiðinlegt.

Það er einungis einn skjávarpi á vinnustaðnum mínum, og einungis ein Wii tölva sem ég get gripið í ef mér leiðist. Ja kannski er alveg nóg að hafa eina Wii tölvu og einn skjávarpa.

það er kaffivél hérna sem ég er alltaf að nota. Ég er búinn að drekka svona þrjúhundruðogfimmtíuþúsundáttahundruðfimmtíuogfimm bolla í þessum mánuði, og hann er rétt byrjaður. En það er gott, heldur mér vakandi xD

Það er rosalega flott poolborð hérna, því miður er ég einn hérna mestallan daginn þannig að ég þarf alltaf að spila pool við sjálfan mig. Ég vinn alltaf… en tapa líka alltaf, það gerir mig leiðan.

Endilega segið frá ykkar vinnustað, en þessi vinnustaður sem ég er á er beztur í heimi!