Kindin mín fæddist á plánetu sem er langt langt í burtu og plánetan er bleik!
Mamma og pabbi kindarinnar minnar eru kóngur og drottnig á plánetunni svo kindin mín er svona prins.
Enn þegar leið á ævi kindarinnar varð hún rugluð og spillt og fór að nota eiturlyf!
Þegar kindin var búin að kveikja þrisvar sinnum í konungshöllinni þegar hún var að taka leysigeisla inn þá ákváðu foreldrar hennar að snenda hana í meðferð.
Þau fóru að leita að plánetu sem væri góður meðferðarstaður og fundu svo jörðina því jarðardópið var svo óþróað og hættulaust fyrir kindina að þau ákváðu að senda hana til jarðarinnar!
Enn kom upp smá vandamál!
Hver ætti að sjá um kindina?
Þau leituðu útum allt að manneskju til að taka við kindinni og þegar þau voru alveg að gefast upp Fundu þau mig !! einu manneskjuna á Jörðinni með hæfileika til að sjá kindina!!
Og þar sem ég sat í makindum mínum í herberginu mínu að krota á vegginn fann ég fyrir óstjórnanlegri löngun til að teikna KIND
Svo ég byrjaði að teikna sem ég væri í leiðslu og úr því varð Kindin mín sem hafði akkurat verið að kveikja sér í sígarettu þegar hana bar að garði.
Nú býr hún í herberginu mínu og þótt ég reyni að streitast á móti henni þá er hún samt að plana heimsyfirráð!
Því það sem við vitum ekki er að kindur eru miklu þróaðri enn við enn þykjast vera heimskar til þess að láta okkur halda að þær séu meinlausar!!
But when the time comes .. Beware !!
Ef þið viljið sleppa við að vera tortímt skuliði skrá ykkur í the holy sheep cult og þá verðiði að afneita ykkar trú!!
This is not a joke!

BORED but creative aight xD lul I'm hopeless
lol