Já…ég fór útí búð hérna einu sinni fyrir ekki svo löngu.
Mig langaði samt ekki í neitt og labbaði um búðina í svona hálftíma þegar ég allt í einu: “smámál!!!”

Ég nánast hljóp að kælirnum og viti menn….þar var ekkert smámál….

Og auðvitað varð þetta algjört stórmál fyrir mig, sem var búin að eyða hálftíma í helvítis búðinni án þess að vita hvað ég vildi, og svo loks er ég fattaði það….þá var það ekki til!

Og ég var auðvitað ill og vond og pirruð….keyrði í næstu búð….. og þá var þetta bara smámál! Labbaði að kælirnum og þarna var það, bíðandi eftir mér.

Nokkra mínútna ánægð er þó ánægjuleg!

P.S. Vinur minn er að hlusta á brillíant lag….og ég fæ ekki að heyra það!

P.S.aftur. Hvort er betra Lord og the Rings maraþon eða Harry Potter maraþon? ^^
"All we have to decide is what we do with the time that is given to us"