*Insert blótsyrði here*

[nöldur]Ég er lasin. Aftur! Helvítis. Og á morgun er hið víðfræga Halloween Party sem ég er búin að vera að tala um í öld. Ég fer þó ég þurfi að mæta uppdópuð af verkjatöflum :T Það eykur bara á raunveruleikagildi búningsins…

Er að drepast í eyrunum og hálsinum, annað skipti á 3 mánuðum. *Bitur*

Óh, og minnstist ég á það að ég er 2 vikum á eftir í þýsku, á 3 bls. eftir í stærðfræði og þarf að gera ritgerðir um Leonardo da Vinci og Copernicus?

Og það er enginn inná msn. Og ég er svöng. Og ég er ein heima…. Held að þetta sé komið.

Hvað segir þú annars gott í dag? 8-)

Pæling, eru allir svona uppteknir eða hvað? Það koma svo fáir korkar þessi misserin… Og öööörfáir kommenta á fréttir -.- Ef þið viljið fréttir, þá puhlease kommenta, annars er þetta eitthvað svo tilgangslaust.

Lolfeis hvað ég var heppin í gær. Einsog ég var búin að vera að nöldra yfir hérna í síðustu viku áttum við að hjóla með skólanum í einhverja 2 tíma og hlaupa svo í einhverjum skógji. Ég og vinkonur mínar vorum að reyna að finna leiðina útúr bænum (ekki ljóskur, neinei…) og vorum búnar að hjóla um í hálftíma án þess að miða neitt. Og þá púnkteraði framdekkið hjá mér! Weeeeeh þannig ég var bara heim að tjilla á meðan allir hinir voru í píningu í 4 stiga hita. Hahh.

Jæææja pæling að fara að hætta þessu?

Toodles *veif*
We're just two lost souls wimming in a fish bowl.