Góða kvöldið kæru sorparar.
Það hefur orðið breyting á samkundunni. Við erum nokkuð viss um að við hættum við bíóið og höfum bara lengra flipp. Fæstum langar hvort eð er í bíó.
En við komum í staðinn með þema :D
Allir að mæta með einhverja áberandi hluti. Helst hatt. Áberandi sólgleraugu eða álíka er samt alveg nóg. Ég, Padfoot, ChocoboFan og Gexus mætum allavega íklædd furðulegum höttum.

- Morgothal, Gexus, Padfoot og ChocoboFan.

Bætt við 17. október 2007 - 21:12
Og endilega komið með hugmyndir að hlutum sem hægt er að gera skemmtilegt en tekur ekki of langan tíma.