Habba says:
Það eina sem ég krefst af þér, kæra Sibba, er að koma fyrir klukkuna að ganga sautjánhundruð, því maki minn mun þá bíða til sætis í glæsibíl mínum til að komast ferða sinna úr tekjustað sínum.
Sibba - HI FLOOR! Make me a sammich =D says:
Kostur er það, mín kæra, að hafa allan daginn fyrir sig, þar sem allur tíminn má fara í vitleysusteypu þá er okkur gæti látið oss fljúga í höfuð vort. Vér skulum eigi koma seinna en sextán fimmtíuogníu.
Habba says:
Þakkir frá dýpstu hjartarótum sem slá jafn ört og tungulipurt svar þitt, vina mín.
Sibba - HI FLOOR! Make me a sammich =D says:
Eigi er þakkanna þörf.
Sibba - HI FLOOR! Make me a sammich =D says:
Hoppandi húlahringir! Fjárinn hirði Herbert og allar hans húfur með tölu! Nú bara verð ég að leyfa augum mínum að líta skrá þá, er inniheldur tuttugu og sjö mínútur af vitleysu.
Habba says:
Gjörðu svo, en mundu svo að þér getið svarað mér auðmjúklega jafnvel þótt þér séuð að horfa á vitleysu yðar, eins og ég geri að auki.
Sibba - HI FLOOR! Make me a sammich =D says:
Hef ég það í huga, vinkona góð, að taka fúll skrín af öðru hvoru svo litið geti ég samtalsglugga þennan.