Allaveganna, ég rétt svo slefaði yfir bílprófið (rétt náði, það er að segja), ef ég hefði gleymt stefnuljósi einu sinni í viðbót…
Annars mistókst mér að bakka í stæði og skilja bílinn eftir í brekku. Kallinn frekar mellow: “Æh, þú lagar þetta bara… ég veit það…”

Og alger skandall! :

Ég var að vinna í sakleysi mínu í gær og var að leita að einhverju kaffi (fyrir einhverja beyglu sem truflaði mig við það að raða banönum á bananatréð!), allaveganna. Við sjáum báðar þegar Laddis sparkar í einhverja kókkippu (troða henni inn í hilluna) og beyglan bara:
“Þetta verður nú ekki gott kók”

Oh, þoli ekki svona beyglur! Ég hef séð áður sparkað í kippur, svo hristist þetta hvortið er helling í flutningi…

Bætt við 29. september 2007 - 23:48
Ég á að vera að læra undir Njálupróf =D