Agglaveganna… Það komu tveir gaurar og tvær gaurur inn í bónus, rétt áður en það lokaði, þannig að ég þurfti að afgreiða þau, gaururnar voru ennþá einhversstaðar að velja sér meira þannig að gaurarnir töluðu við mig.

Gaur: Hvenær lokar?
Ég: Eftir tíu mínútur.
Gaur: Þurfum við að drífa okkur?
Ég: Nei, ekkert sérstaklega…
Gaur: Hva? Nenniru ekki heim?
Ég: jújú…
Gaur: Hvað, fáið þið alveg ágæt laun hérna?
Ég: 963 á helgum.
Gaur: og hvað myndi ég fá ef ég ynni hérna?
Ég: Það veit ég ekki… fer eftir aldri…
Gaur: og hvað ert þú gömul?
Ég: 90'módel (var að vona að hann kynni að reikna)
Gaur: jaá, ég er 88'módel. Ert þú ekki í skóla?
Ég: Júbb, en vinn á helgum og föstudögum.
Gaur: Váá… það hlýtur að vera strembið!
Ég: *yppi öxlum*
Gaur: *byrjar að setja draslið sitt upp á bandið en í staðinn fyrir að setja það bara rennir hann því til mín*
Ég: *hlæ að honum* Er gaman hjá þér?
Gaur: Svakalega. *klárar að setja draslið uppá, tekur eitthvað blað* Veistu hver þetta er?
Ég: neibb…
Gaur: Hún var í ungfrú Ísland!
Ég: Mér er bara alveg sama…
Gaur: Ó…
*gaururnar koma aftur og önnur er þessi sem var á þessari forsíðu sem hann bent á. Þau fara*

Ég held að hann hafi verið að reyna við mig… en ég held líka að hann hafi verið á einhverju =P
(Not that I was interested, en hann var nú ekkert ljótur. lobsterman toppar hann samt =D )