Here i come to save the day…..!
Ekki…?

Okay, allaveganna!
Hér er ég! :D
Ég er reyndar ekki hérna í glugganum þar sem ég er að skrifa einhverja þvælu heldur sit ég í N22 í MK í TÖL!
Beint fyrir framan tölvuskjáinn þar sem ég er að horfa á gluggann sem ég skrifa þessa þvælu! ;D

Ég var mikið að spá í brjóstahöldurunum mínum….
Ég ætla mér alltaf að kaupa mér hvítan brjóstahaldara en ég geri það samt aldrei!
Ég enda alltaf á því að kaupa mér svarta eða dökka…..er þetta endurspeglun af sálinni?
Er ég svona….skuggaleg…? :O

En samt kaupi ég mér milljón hvíta boli sem ég nota svo aldrei afþví að ég er alltaf í svörtum brjóstahaldara! :@

Mér bara varð hugsað til þess vegna þess að ég ætlaði í hvítan bol í morgun en NEI! Ég er bara vitlaus og kann ekki að versla það sem ég þarf heldur það sem mig langar í!
Ég hef skiluru…..átt einn hvítan brjóstahaldara og það var þegar ég fermdist!

Anywho…..ég er að fara í klippingu!
Sorry elsku Laddis minn!
Hárið mitt er orðið það slitið og ógeðslegt að ég er bara farin að hata það, eins sítt og það er =/
En það er einn kostur við þetta allt saman….ég ætla að lita það líka :D

Þá er það stóra spurningin…*Trommuhljóð* Dökkt…..eða ljóst?

Annars er ég nú bara í tjillinu hérna í skólanum og borða spælegg og vinna AUÐVELD tölvuverkerfni….!
Ég er 18 ára stúlka sem lifi fyrir Lappann sinn, og ég er að læra að búa til möppur :'D

Annars leiðist mér bara og ég hata orðið Vista!
Búin að heyra það svona skrillijón sinnum núna á tveimur tímum!

En spurning dagsins: Borðar þú skonsur? *Perrrrrrrrrrrrrrr* ;*

Allaveganna….kem kannski með eitthvað meira bull í ensku ;D

Adios Elskling!
"All we have to decide is what we do with the time that is given to us"