Eins og þið hafið kannski frétt á RazumRu sinn eigin eltihrelli, pólskan eltihrelli.
Nema núna er hann ekki eltihrellir, eins og þið hafið kannski líka frétt, heldur er hann búinn að segja henni að hann elski hana í mjög svo rómantísku bréfi sem skilið var eftir fyrir utan hurðina hjá RazumRu.
Það hljómaði svona:

love you

Já það er nú alveg augljóst að hann er bálskotinn í henni. Hann er nú þegar búinn að vera við það að lemja tvo stráka sem voru einhvað að hanga með henni.
Þar á meðal mig.
Hann hljóp að þessum fyrsta, Ragga, og ætlaði að berja hann en Raggi hljóp í burtu held ég og hringdi í bróður sinn.

Og síðan var ég með RazumRu og stelpu sem ei á Huga account, og við vorum búin að vera að dandalast um kjallarann í húsinu hennar Rözzu og svo fórum við einhvað út og nei, kom ekki pólverjinn labbaði fram hjá mér og sló öxlinni á sér í bakið á mér.
Ég, þar sem ég er ekki mikill slagsmálahundur, sný mér að Rözzu og spyr hvað sé eiginlega að honum og muldraði einhvað meira.
Nei, kemur gaurinn ekki upp að mér eins og hann ætli að kyssa mig eða einhvað og starir á míg í nokkrar sekúndur.
Nú ég tek náttúrulega bara í nefið á honum, brýt það, negli í sköflunginn á honum þannig að hann dettur í jörðina og læt hann liggja þar vælandi.
Eða, það ímyndaði ég mér.
reyndar ég horfði bara á móti og Razza sagði ‘He didn´t say anything’ og hann labbaði í burtu fýldur á svip.

Hann vægast sagt mjög afbrýðisamur út í stráka sem hanga með henni RazumRu.

Hvernig endar þetta? Byrjar Razza með honum?
Only time will tell.