Hvað segið þið gott?
Mér leiðist :(
Þarf að hanga hér í íbúðinni hjá ömmu minni og afa af því að enginn vinur minn er heima:(
En það er samt nett útsýni héðan. Sérð yfir alla Keflavík og yfir í Reykjavík. Snæfellsjökull sést líka vel :D

Ég fór á Shrek í bíó í gær með ebebet og RasumRu.
Það var gaman að misskilja allt sem þau sögðu xD
Ég held samt að við höfum skemmt okkur betur en restin af fólkinu.
Sorry ef þið voruð þarna :)
Síðan fer ég á Die Hard 4.0 í kvöld :D

Fóruð þið í bíó í gær?