jæja ég ætla að setja hérna 17 júní lagið.

Allir að syngja með.

Blómin springa út og þau svelgja í sig sól, sumarið í algleymi og hálft ár enn í jól.
Í hjarta sínu fólkið gleðst og syngur líið lag, því lýðveldið Ísland á afmæli í dag.

:,:Hæ, hó jíbbijei og jíbbijei það er kominn 17 júní:,:

Jóni heitnum Sigurðsyni færir forsetinn firnamikinn árvissann og stóran blómsveig. Fjallkonan í múnderingu prílar upp á pall,
með prjáli les upp ljóð, eftir löngu dauðan kall.

:,:Hæ, hó jíbbijei og jíbbijei það er kominn 17 júní:,:

Skrúðgöngurnar þramma undir lúðrasveitarleik, lítil börn með blöðrur, hin eldri snafs og reyk. Síðan líður dagurinn við hátíðanna höld, heitar étna pylsurnar við fjölmörg sölutjöld.

:,:Hæ, hó jíbbijei og jíbbijei það er kominn 17 júní:,:

Um kvöldið eru allstaðar útidansleikir, að sunnan koma rándýrir skemmtikraftarnir.
En rigningin bindur enda á þetta gleðigeim, því gáttir opnast himins og allir fara heim.

:,:Hæ, hó jíbbijei og jíbbijei það er kominn 17 júní:,:

Allir að syngja þetta annars munuð þið hljóta verra af. *labbar í burtu og hlær óhugnalega*