Hérna er annað stykki þráður frá Bergrúnu eða NotQuite.

Á fimmtudaginn sá ég Pabbann, þ.e.a.s leikritið.
Mjög skemmtilegur einleikur þar sem hann Bjarni Hauksson gerir grín og sitthvað fleira. Æðislegt.

Talandi um Bjarna…

- Hneyksli

Þetta gengur ekki lengur!

Muniði eftir fréttunum sem DrHaHa átti að gera 7.júní?
Jæja, þær komu í fyrrdag, þann 9.júní, allir búnir að væla þvílíkt mikið, en það eru einungis 7 búnir að svara!

Hvernig stendur á þessu?

Hann HaHa, eða Bjarni sem er yfirleitt með allt á hreinu, fékk nýlega ritstíflu og það var ráðist á hann í milljónatali útaf því að hann “beilaði” og svo svara hversu margir þessum fréttum?
Sjö manns!
Sjö manns!!!
Þetta er til skammar.

Núna fjölmennum við og svörum fréttunum. Þetta er fáránlegt, 300 manns rúmlega búnir að skoða þær og lesa en undir 10 svarað!
Greyið Bjarni segi ég nú bara. Litla sálin hans hefur orðið fyrir skemmdum.

Áfram allir!

[Og já, ég ætlaði aldrei að nefna leikritið]