Hver man ekki eftir litlu plast hausunum sem voru í kringum 2000-2001 (minnir mig)? Var æði á svipuðum tíma og Pokémon…man eftir því þegar ég var hooked á þessu þegar ég var 10 ára gömul…en núna held ég að ég sé að verða vitlaus…er Dracco æðið að koma aftur?!

Ég vinn nefninlega í kaupfélagi út á landi og það var ekki neitt að gera þannig að ég ákvað að gerast alveg rosalega sniðug og fylla á nammi barin…JOY!!…just feel the sarcasm people…þar sem þetta er líka starf minn sem kassadama *hrollur* að fylla á þetta ógeð þar sem það er skylda að vera með svona plasthanska sem maður svitnar strax undan og maður verður alveg óþarflega sticky eftir þá á endanum….en að aðallefninu sem þessi korkur er um…

Dracco kallana….já þegar ég ætlaði að fara að fylla á nammibarinn sá ég þennan kassa FULLA af Dracco hausum….og ég auðvitað var bara: “wh00t?! o.O” skildi ekki neitt…hélt bara að þetta var virkilega, þá meina ég VIRKILEGA gamall kassi af Dracco köllum sem voru þarna bara…þannig að ég pældi ekkert í þessu…en svo þegar ég þurfti að ná rútu til reykjavíkur þá kom ég við í sjoppunni í kaupfélaginu og sá Dracco kassann þar! er þetta æði virkilega að koma aftur?! en ég ákvað bara að hætta að hugsa út í þetta….en svo þegar rútan stoppaði í Staðarskála þá sá ég ANNAN Dracco kassa! þá byrjaði ég að pæla eitthvað í þessu…og svo núna í dag er ég sko lengst út á landi heima hjá pabba mínum í mjööög fámennu þorpi…og var þá ekki Dracco kassi í sjoppunni þar! -_-"

Persónulega finnst mér það kjánalegt að reyna að koma með Dracco aftur, yrði samt álíka kjánalegt að reyna að koma með Pokémon aftur (sem er ennþá greinilega æði út í japan r sum)…

að öðrum málum….

úúúú ég er ekki búin að senda kork hingað inn á sorpið í næstum því mánuð! =O djöfulli er ég óvirk hérna…pff…