Þar sem það er orðið langt síðan ég hef verið með einhvern kork hérna þá áhvað ég að skrifa smá um marblettaliti ^^

Hafiði einhverntíman pælt í litadýrðinni sem marblettir gefa manni? Allavega er að koma sá árstími þar sem litir eru í tísku! Eigum við að fara og berja hvort annað í klessu til að fylgja tískunni, nei vitiði það er kannski ekkert allt of sniðugt, fylgi tískunni ekki nema hún sé að elta mig sem er ekkert voða algengt..

Sjálf er ég með mar á fæti, hóffar eftir að ég var slegin af meri, en mar þetta hefur sýnt ábyggilega alla mögulega liti mars :O

En einhverjir gætu verið misséðir hjá mér, sökum litblindu.

Þar hefur verið nærrinþví svart, fjólublátt, blátt, gult, smá brúnt og grænt, og svo endalaus litafbrigði af þessum litum.

En afhverju haldiði að marblettir verði svona mislitir? Eruði með einhverja sérstaka marbletti? Eða spes meiðsli?
-