Jæja, núna ætla ég að segja ykkur frá hörmulegustu lífsreynslu EVER!. Án gríns, þetta var ógeðslegt og þegar ég hugsa um þetta langar mig mest að fara að hágrenja!
Sko ferðalagið hljómaði svona: Skoða elstu torfkirkju landsins (það var geðveik leiðinlegt), fara í rafting, fara í klettasig og svo í júróvísjón partí og pizzu á eftir.
Nenni ekkert að tala um kirkjuna svo ég byrja á raftingnum.
Byjuðum á að fara í raftinginn. Þetta getur ekki verið eðlilegt!! Ég er óheppnust í heiminum! Ókei allavega, við vorum þarna í bátnum og svo máttum við hoppa útí ef við héldum okkur í sérstakt reipi, neinei! hanskarnir voru svo sleipir að ég náði ekki reipinu og datt alveg útí og ég sver það að ég hélt að ég væri að drepast og var næstum farin að hágrenja en þá var mér bjargað.
Já, og svo máttum við aftur hoppa útí. Þá var þetta svo djúpt og fæturnir fóru alveg undir bátinn og eg panikkaði og komst ekki upp. Þá koma vinkonur mínar 2 og toga mig báðar geðveikt hratt og snögt upp úr. Og týpískt ég! Flíf með nefið á einhverja helvítis ár! Guð minn góður hvað það var vont. Með meðfylgjandi bóðnösum og stöffi.
Jæja svo fórum við beint í helvítis klettaklifrið!! Ef þið eruð SMÁ lofthrædd, EKKI EINU SINNI REYNA! Eitt orð, PANIKK! Já ok, aftur að sögunni :P Ég var þarna að fara að síga, leit alltaf niður og panikkaði og svo var ég komin alveg út á brúnina og var alveg að fara síga, þá panikkaði ég bara geðveikt mikið og hágrenjaði eins og smákrakki. En ég var staðráðin í að fara þarna niður.
Svo að ég prófaði aftur litlu seinna. Þá fór ég á annan stað sem var aðeins léttari. Og já þá panikkaði ég á leiðinni fram af, en lét mig hafa það og seig hágrenjandi og öskrandi niður. Neinei svo FESTIST helvítis hárið í áttunni (það er dót sem maður sígur með)og var föst. Hékk þarna á hárinu öskrandi og grenjandi.
Karlinn var svo helvíti lengi á leiðinni að ég var næstum búin að sleppa hnútnum og þá hefði allt hárið mitt rifnað af. En já, svo kom hann og SKAR allan lokkinn afmeð vasahníf! Og já, eftir þetta áfall skalf ég svo mikið og grenjaði eins og smábarn að hann hélt á mér í fanginu afganginn af leiðinni niður.
Jæja, núna eru liðinn rúmlega 2 og hálfur tími og ég skelf ennþá. Svo hugsið ykkur ALLAVEGA 70 sinnum um áður en þið farið í klettasig!

Ég veit að þetta er kannski svolítið langt.
Ég vandaði mig rosalega við að skrifa þessa grein :)
Það eru tvær leiðir til að öðlast innri frið: Að gera