Hvað er Emo ?
Hugtakið Emo náði upprunalega nær aðeins yfir tiltekna tegund pönktónistar sem átti rætur að rekja til tónlistarhreyfingarinnar í whashington D.C. í Bandaríkjunum á níunda áratug síðustu aldrar. Heitið er tilkomið vegna þess að sviðsframkoma emo-tónlistarmanna þótti oft tilfinningaþrungin (emotioal). Smám saman víkkaði svo merking orðsins út, og nú er svo komið að erfitt er að segja til um hvað tónlistarmenn sem flokkaðir eru saman undir þessu merki eiga í raun sameiginlegt. Á síðustu árum hafa fólk farið að nota hugtakið emo um meira en aðeins tónlist.


Fólk sem skilgreinir sig sjálft sem emo er oft meðvitað um tilfinningar sínar og finnst stundum eins og heimurinn sé á móti sér. Unlingar virðarst gjarnan samsama sig slíkum hugsunarhætti og er lítið um emo fólk undir tvítugt. Tónlist skiptir miklu máli í þessum lífsstíl, en aðallega er um að ræða pönk, rokk og óhefðbundna (indie) tónlist. Samkvæmt staðalmyndum eru emo-einstaklingar oft þunglyndir eða þykjast vera það. Þeir eiga að til að skaða sjálfa sig og skrifa sorgleg og þung ljóð um hvað þeim líður illa. Einnig eru þeir frekar feimnir og hlédrægir.

Í emo-klæðnaði er mikið um dökka liti, röndótt föt (þá aðallega svart og rautt og svart og blátt) og hljómsveitaboli. Einnig er algengt að fötin séu notuð (vintage), og er yfirbragð oft mjög sjúskað. Þröng föt eru líka vinsæl, sérstaklega hjá strákum og eru þeir yfir leitt í of litlum bolum og þröngum buxum, jafnvel sem sniðaðar eru á stelpur. Svartir converse All-stars skór eru mjög vinsælir en einnig er algengt að ganga í svörtum klossum eða hermannaskóm.

Til eru svokallaðar emo-hárgreiðslur. Einkennandi er svart hár sem hylur andlitið, oft með rauðum, fjólubláum, brúnum eða ljósum strípum. Svartur augnblýantur er mjög vinsæll hjá báðum kynjum, jafnt sem gatanir í andliti og eyrum. Algengt er að gata nef, eyru, varir eða augabrúnir. Einnig er sumt emo-fólk með svokallað “tunnel” en það er járnsívalingur settur í gegnum gat á eyrnasnepplinum og stækkað hann !


heimildir :
einhvarstaðar útí rassgati


þei giði .
I beat anorexia !