Eins og allir vita þá eru íslendingar ein keppnissamasta þjóð heimsins sem má meðal annars sjá á því hvernig göturnar tæmast í hvert skipti sem að landsliðið í handbolta er að spila og svo það stærsta af því öllu Eurovision.

En nú er komið nytt mál sem að við íslendingar verðum einfaldlega að vinna. á síðunni www.clickclickclick.com er allveg fullkomlega tilgangslaus leikur sem að fellst í því hvaða þjóð heimsins er duglegust að klikka á takkann.

Þann 17. apríl þegar að ég fór fyrst inn á þetta vorum við í 16.sæti með rúmlega 11.000.000 klikk og nú 24 tímum seinna erum við með tæplega 18.000.000 klikk.

Miðið við það að við sem þjóð erum ekki nema u.þ.b. 300.000 er það allveg talsvert. Og til gamans má geta að þjóðin sem er í efsta sæti er með rúmlga 56.000.000 klikk.

Þar sem að Ísland er best í heimi eins og við öll vitum þá held ég að við þurfum að sanna það fyrir öllum heiminum.

ÞANNIG AÐ ÍSLENDINGAR NÆR OG FJÆR SAMEINUMST NÚ Í EITT SKIPTI FYRIR ÖLL OG KLIKKUM ÚT Í RAUÐANN DAUÐANN!!!!!

ÁFRAM ÍSLAND!!!!!
Love is a game that two can play and both win by loosing their heart.. <3