Bróðir minn á svona eldgamlar Muppets fígúrur sem eru ógeðslega sjaldgæfar. Síðan þegar ég var lítill, þá fór ég uppí sveit með fígúrurnar hans. Síðan var ég eitthvað að leika mér úti í garði hjá afa með þær í einhverjum Prúðuleikaraleikjum og fór svo að kasta 3 þeirra (Kokkinum, Svínku og Skúta) á milli handana svona eins og trúðar með bolta!

Eftir smástund missti ég nátturulega einn og það var kokkurinn. Ég beygði mig niður til að ná í hann… og þá var hann ekki þarna :O Ég leitaði útum allan garð og fékk afa, mömmu, pabba, systkini og frændur til að hjálpa mér, en gaurinn var bara týndur :O

Fann þessar fígúrur áðan og fór í sjokk þegar ég mundi eftir þessu… Ég er ennþá hræddur við þær og ótrúlega leiður fyrir að hafa týnt kokkinum :'C
Anywayz, svona líta nokkrar af þessum fígúrum út:

http://www.timelesstrinkets.com/Other/Images/MuppetsFRolf.jpg
http://www.timelesstrinkets.com/Other/Images/MuppetsFSamEagle.jpg
http://www.timelesstrinkets.com/Other/Images/MuppetsFStatler2.jpg
http://www.timelesstrinkets.com/Other/Images/MuppetsFWaldorf2.jpg
http://www.whatacharacter.com/g-o/m0306052.jpg (fyrir utan þennan kassa)

And so on and so on…

Nú eiga allir að segja furðulegar sögur af einhverju sem hefur komið fyrir þá r sum :Æ