Jæja, náðuð þið að gabba einhvern, pípol?

Ég náði tveimur í dag, ætla að reyna að plata vinkonu mína í kvöld.

Ég sem sagt fór uppí herbergi til mín, tók gamla ljósaperu og setti í poka. Lamdi pokanum svo í gólfið þannig að peran smassaðist með öllum tiheyrandi hljóðum. Hehe, mamma fékk flog og kom á fullu að tjékka hvað hafi gerts. Fyrsti apríííííl

Síðan var ég búin að lofa að gabba pabba, sem er ekkert rosalega auðvelt, svo ég beytti afar lúalegu bragði. Ég hringdi í símann hans. En hey, hann fór og leitaði að símanum, þannig þetta telst með!

Annars er ég ekkert rosalega ánægð með uppskeru dagsins, hef oft náð betri göbbum. Samt, tvö hlaup, og vonandi eitt í viðbót : )
We're just two lost souls wimming in a fish bowl.