Hötum við ekki öll að vera lasin? Ójú.

Ég sem sagt ligg hérna uppí sófa einsog klessa, með ógeðslegan hausverk og frýs úr kulda, horfi á Mr. and Mrs. Smith og skrifa hérna. Gaman að því. Eina góða við það er að maður fær að sleppa skólanum. En það er samt ekki gott vegna þess að þá missir maður af. Og þá hefur maður meira heimanám. Þannig all in all, þá er þetta allsekki gott. I need a hug…

Og vegna þess að ég er að hugsa svo jákvæðar hugsanir í augnablikinu, þá ætla ég líka að spyrja ykkur: Hvað á að skrifa á legsteininn ykkar? Á mínum á að standa; “Hér hvílir *Insert name*. Hún lést í sorglegu fallhlífarstökksslysi. Hún var afar frábær manneskja, hennar er sárt saknað. R.I.P, R.A.P og R.U.P”
We're just two lost souls wimming in a fish bowl.