Ég var bara að fatta það í dag að ég er með örbylgjuofnafóbíu og hef verið með hana í nokkur ár :$ Einu sinni starði ég alltaf inní örbylgjuofninn, en mamma sagði mér einhverntímann að það gætu komist örbylgjur út og valdið heilaskemmdum! Ég var bara að fatta það núna að í hvert einasta sinn sem ég hita eitthvað í örbylgjuofni stekk ég frá honum eins og einhver sé að skjóta á mig :S Bull!

Og annað. Ég var að horfa á “The Insider” eftir Michael Mann áðan, með Íslenskum texta. Orðið Insider var þýtt sem “Laugarásbíó” =O Hvílíkt bull!

“This man is the Insider”
“Þessi maður er Laugarásbíó”


Bætt við 27. janúar 2007 - 16:33
Annars ágætur lordag í dag! Eru allir búnir að namma sig upp?