Hafið þið lent í því að þegar vinur ykkar gerir e-ð rangt og þið ætlið að vera svo góð/-ur vinur að þegja yfir því..
og svo kemur pabbi vinar ykkar sem er alveg stór og mikill mótorhjólagæji..
svona einsog í myndunum..
og spyr ykkur hver hefur gert þetta ranga?

Ég lenti í því rétt áðan..
vinur minn sprengdi póstkassa..big deal..
en hér eru málin aðeins öðruvísi en í bænum..hér þekkja allir alla..
..og ég ætlaði bara að vera góður vinur og þegja bara..
svo fer ég með bróður mínum í búð (sem heitir Baula) og ég ætlaði að kaupa kók og nammi og hafa það gott um kvelið og svona..
en svo kemur þessi pabbi drengsins..stór og mikill
..og hann á sko búðina og hann spyr mig hver hafi sprengt póstkassan
..og ég ætlaði að vera góður vinur og ljúga..en ég bara get það ekki..ég hef það bara ekki í mér að ljúga svona..og nú er gaurinn fúll út í mig..
eða ég held það =/