Hæ.
Ég ætla að segja sögu.

Þessi Saga fjallar um hvernig ég fékk stærtsu kúlu í heimi á hausinn…

Þetta var klukkan svona 2 að nóttu á fimmtudagsnótt. Ég vaknaði við eitthvað og fór inní eldhús að fá mér ABT-Mjólk. Það var alveg myrkur og ég kveikti ekki ljósinn, veit ekki afhverju.
Allavgea, ég tók ABT-mjólkina útúr ískápnum og ætlaði að hoppa fram, en vitið menn!
Ég dúndraðist á hurðina sem var hálf opin. Ég lenti á hurðar barminum eða þú veist…
En allavega, ég veit ekki hvort ég rotaðist en ég man eftir því að mamma vaknaði við þetta því ég datt beint aftur fyrir mig á gólfið. Ég opnaði augun og sársaukin var ógeðslegur! Mamma spurði hvað gerðist en ég var of vankaður til að geta svarað henni strax. svo sagði ég henni að ég hafi ætlað aðp hoppa út en hoppað beint á hurðina og dottið aftur fyrir mig því ég sá ekkert í myrkrinu.
Ég fékk kalt á kúluna sem var alveg risastór og lagðist uppí rúm.
Ég gat fyrst varla sofnað en svo smátt saman minkaði verkurinn.

Daginn eftir fékk ég að sleppa skóla útaf því ég var alveg með stærstu kúlu í heimi og geðveikt bólginn og aumur.
Svo núna tveimur dögum síðar þá er kúlan næstum farinn sem betur fer.
Mér Langaði bara að deila þessari gríðarlegu lífsreynslu minni með ykkur.
Heh, ókei.