Ég var að verzla í Nettó áðan, og þar sem að það er 1. des er mikið um að vera. Það voru fullt af kynningum og þannig þar, s.s. piparkökur, ís og meira gotterí :Þ

Kem ég þá ekki að borði sem bauð upp á alveg rosalega góða böku (sýndist mér) og ákvað ég auðvitað að smakka bita. Ég kastaði bitanum uppí mig í heilu lagi á meðan konan sem var að kynna þetta átti í hörkusamræðum við gamla konu.

Áður en ég náði að finna bragðið af bitanum spurði gamla konan:

“…Og er svo ekki lifur í þessu?”

Og hin konan svaraði:

“Jújú, meira en helmingurinn, og kæfa líka.”

Ewwww! Ég kúgaðist auðvitað ógeðslega þar sem að þetta var ótrúlega seygt og “lifrað”, og mundi þá eftir piparkökukörfu þarna einhversstaðar!
Ég hljóp um búðina að leita að piparköknum og fann loks körfuna. Allt búið :'C Ég leitaði þá að einhverju öðru til að borða, ennþá með bitann upp í hálsinum þar sem ég gat hvorki fengið mig til að kyngja honum né spýta honum (dónaskapur :O )

Ég leitaði rosalega lengi að einhverju, og var á meðan næstum því búinn að æla yfir litla stelpu, og tvær innkaupakörfur. Síðan var loksins búið að fylla á piparkökukörfuna, eftir svona 10 mínútna “kúgastennþámeðbitannuppímér”.

Well, nóg af bloggi, hata blogg á Sorpinu :@ nema þegar eitthvað skemmtilegt gerist :D
Að þessu sérstaka tilefni ætla ég að spurja ykkur: Hvað er það versta sem þið hafið smakkað?
Ég er þegar búinn að skrifa mitt svar :O

Hverjir voru með rautt nef í dag??? Ég var með rautt nef næstum allan daginn :D nema þegar ég var á hljómsveitaræfingu :(
Olsó, hverjir ætla að fylgjast með jóladagatalinu á eftir???

:O :O :O :O