Argh!
Ég er komin með OFNÆMI! :C Ég sem hef alltaf verið svo stolt af að hafa ekkert…

Vaknaði uppí morgun með rauða flekki í framan, en ákvað samt að fara í skólann. Þraukaði einn tíma með húfu niður í augu en þá var mig byrjað að klæja og svíða svo mikið að ég fór heim.
Og núna er ég eld rauð og ótrúlega bólgin, mig svíður, klæjar og er heitt í framan. Hrmph.

Annaðhvort er þetta ofnæmi útaf einhverju kremi eða kisunni minni. Vonandi ekki kisunni : O

Eruð þið með eitthvað svona pirrandi ofnæmi? Ef svo er, ég samhryggist :C