Það vill svo skemmtilega til að ég ætlaði að kíkja á Borat myndina með nokkrum félögum í kvöld. Fattaði svo að ég mindi neiðast til þess að reyna að fá einhvern til þess að skutla mér í bæinn þar sem að strætó gengur ekki nógu lengi til að það sé öruggt að ég komist heim eftir myndina. En nei.. allt varð að fokkast upp. Og fyrst það var ekki nógu slæmt þá á ég ekkert sem mig langar að éta, vafningspappírinn minn er alveg að klárast og ég finn mér ekkert að gera. Ég gat nátturulega ekki fundið neinn sem gat reddað mér fari, svo í staðin sit ég heima að röfla yfir eitthverju smávægilegu kjaftæði. Svo langaði mig líka að spyrja, hverjir hérna reykja?
Þetta var awesome