Ég veit ekki hvort þið eruð búin að fá þetta keðjubréf á msn,
sambandi við barn sem er í lífshættu og er í öndunarvél.
Kannski mynduð þið kalla mig hjartalausan hálfvita, fávita, að ég væri sálarlaus o.s.frv.

En hversu oft sjáiði einhvern lýsa depurð sinni yfir hverju barni sem deyr í Afríku dag hvern? Hversu oft sjáiði einhvern segja : “Settu ”Haldið í vonina(eða eitthvað álíka.)“ til að sýna að þér er ekki sama um líf annarra”

Líka, setja bíl fyrir framan nafnið til að sýna hversu leið þið eruð yfir öllum sem deyja í bílslysi á Íslandi.

Það er aldrei talað um hvernig fólkinu líður í Palestínu, Írak og nálægum löndum/ríkjum.

Það lifir við fátækt og fær eflaust oft fregnir af því að fólk í þeirra landi er að deyja úr hungri, sjúkdómum eða af öðrum ástæðum.

Ég finn auðvitað til með fólkinu sem hefur misst ættingja/vini sína í bílslysi eða þeir sem þurfa að horfa upp á þetta barn( og öðrum ) berjast fyrir lífi sínu í öndunarvél, þannig að það er tilgangslaust að koma með skítköst til mín útaf þessu, endilega finnið betri ástæðu.

Ég veit ekki hversu margir deyja í bílslysi ár hvert á Íslandi eða hversu mörg börn þurfa að vera langan tíma á spítala og berjast við að halda lífinu.

En sá fjöldi jafnast ekkert á við þann fjölda sem deyja annarsstaðar..

Ég er 90% viss um að einhver finnur ástæðu til að koma með hundleiðinlegt skítkast í mig útaf þessum korki, og mér er sama.

En ég verð bara að láta í ljós hversu hneykslaður ég er af þessu…