Í dag vaknaði ég! Það var spennandi! Og síðan fór ég í skólann! 20 mínútum seinna var ég aftur á leiðinni heim! Ég gleymdi að koma með lúsamiðann! Og allir voru sendir heim, eða nánast!

Það gengur semsagt lús í skólanum mínum! I find it disgusting! En ég er ekki með lús, búin að kemba! Duglega ég! En samt klæjar mig í hausinn! Þetta er eitthvað syndrome! Alltaf þegar þú heyrir minnst á lús fer þér að klæja í hausinn! Damn!

Og síðan fór ég heim og fékk undirskrift frá virkilega pirraðri móður minni sem ég hef ákveðið að þola ekki í augnablikinu! Og hún sagði mér að fara aftur í skólann! En þar sem ég er svo ofsalega mikið Rebel í mér(Naah, ekki svo, eða svona smá, ég er bara svo drullu samviskusöm að ég er byrjuð að naga mig í hendurnar fyrir að hafa ekki farið strax aftur í skólann) þá ákvað ég að sleppa stærðfræðitímanum tvöfalda! Gleði! Það var gaman!

Mig langar hinsvegar í tímana eftir hádegi, valfög alltsaman! Einkar spennandi! En svo var það ákvörðunin hvort ég ætti að fara í íþróttir! Mikil pæling þar! Og síðan hugsaði ég - NEI! Ég er nefnilega að fara í píptest! *Tapar sér*

En síðan fór ég að íhuga betur og komst þá að þeirri niðurstöðu að ef ég færi ekki í píptest í dag þá þyrfti ég að gera það á mánudaginn! Og mánudagar eru ekki vinir mínir hvað varðar að hlaupa fram og til baka endalaust kl. 10! Svo ég tók þá ákvörðun að skella mér niður í íþróttahús! Rétt bráðum!

En ég vil samt úthúða píptesti hérna! Mér finnst þetta drulluasnalegt og hundleiðinlegt og það ætti að afnema þetta! Og ef ég væri ekki svona ógeðslega metnaðargjörn(Gæti þurft að minnka það aðeins) hvað íþróttir varðar, Ég vil fá 10, þá yrði ég heima til 13!

Screw Píptest! *Fer og hengir upp veggspjöld sem hvetja til eyðingar píptests!* Píppróf! Píp eru ömurleg!

Ég er farin! *Röltir út og étur penna*