Ég hef ekki fengið frið frá myndaóðum samkunduförum í allt kvöld, svo ég lét undan og uploadaði öllum myndunum sem ég tók í gær inn á netið. Það var vesen, m.a. af því að ég var búinn að fullnota picturetrail accountinn minn, en ég reddaði því eins og mér einum er lagið ^^ Nýjung á þessari samkundu er að ég tók upp eitt myndband, svakalega skemmtilegt, þar sem ýmislegt gerist, m.a. segir Þórhildur að hún hafi unnið skó. Check it out.

Linkurinn? http://www.picturetrail.com/gallery/view?p=999&gid=13108177&uid=6825529

Jæja, ekkert meira að segja… Þetta var gaman, fyrir utan það að ég var rekinn út af American Style =/ Kannski það verði haldin ein svona einhvern tímann aftur, eftir einhvern tíma, aldrei að vita beibís ;}

Skoðiði bara mínar frábæru myndir, sem eru 93 talsins, hefðu verið fleiri ef ég hefði verið með rétt batterí í myndavélinni. Var með einhver léleg hleðslubatterí sem líta út næstum eins og batteríin sem ég nota alltaf í myndavélina, og ruglaðist, og núna finn ég ekki myndavélahleðslubatteríin =/ Oh well…

Enjoy.

Bætt við 8. október 2006 - 21:52
Vúpsí, þegar ég gerði bold kom ekki linkedílink. Try again:

http://www.picturetrail.com/gallery/view?p=999&gid=13108177&uid=6825529