Hvað er asnalegasta “slys” eða “óhapp” sem þið hafið lent í?

Mitt óhapp er þegar ég var í skotbolta í leikfimi og ég kastaði eitthvað asnalega og snerist í loftinu og skall í bakið… uhh, það var asnalegt.. Og svo líka þegar ég var á hækjum og fór með Jóa (sem var líka á hækjum) á morfís í hamrahlíð, svo þegar ég kom inn þá datt ég beint á rassinn fyrir framan alla og það var svo vandræðalegt :(

Og mitt slys er þegar ég var svona 11 ára þá var ég í fótbolta á malarvellinum hjá kirkjugarðinum í borgarnesi, og ég var betri í fótbolta en bróðir minn og hann varð svo pirraður á því að hann hrinti mér beint á stein og ég fékk gat á hausinn, það blæddi svolítið mikið úr mér og allur bolurinn minn orðinn rauður á öðrum helmingnum af blóði.

Ég var btw saumuð einu spori þá :'D