Rétt áðan var náungi sem vinnur fyrir pabba að fara út af verkstæðinu, ýtti á vissan takka með ljóstakka sem er alltaf slökkt á á kvöldin og þá.. Varð allt svart.. Rafmagnið fór! og ég sé næstum ekkert í myrkri, nátt/dökkralita litblinda.. Allavega ekki þegar það kemur svona skyndilega.. Við fundum samt fljótlega töfluna og því er rafmagnið komið aftur.. En mér sem bregður eiginlega aldrei almennilega, mér brá..

Held samt að þetta hafi verið ágætis ábending um að ég eigi að fara að fara heim að sofa.. Samt svoldið sjokkerandi..

En hvað segiði annars? Eitthvað sjokkerandi gerst nýlega? =Þ
-